Ferill 135. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 135 . mál.


Ed.

289. Nefndarálit



um frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Á fund hennar komu Kjartan Kjartansson og Geir Geirsson frá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og Vilhjálmur Egilsson frá Verslunarráði Íslands.
    Meiri hl. leggur til að frumvarpið verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 142.
    Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk þessu áliti.

Alþingi, 20. des. 1988.



Eiður Guðnason,

Valgerður Sverrisdóttir,

Jóhann Einvarðsson.


form., frsm.

fundaskr.



Margrét Frímannsdóttir.