Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 356 . mál.


Nd.

657. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 64 21. maí 1965, um rannsóknir í þágu atvinnuveganna.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    Á eftir 2. mgr. 28. gr. laganna komi ný málsgrein svohljóðandi:
    Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er heimilt, að fengnu samþykki stjórnar stofnunarinnar og sjávarútvegsráðherra, að eiga aðild að rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum er séu hlutafélög eða önnur félög með takmarkaðri ábyrgð er þrói hugmyndir og hagnýti niðurstöður rannsóknar- og þróunarverkefna sem stofnunin vinnur að hverju sinni.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með frumvarpi þessu er lagt til að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins verði heimilt að eiga aðild að rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum sem vinna að því að hagnýta niðurstöður rannsókna stofnunarinnar í þágu atvinnuveganna. Er það álitið kostur fyrir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins að geta átt aðild að stofnun sérstakra fyrirtækja um slík verkefni en með því getur stofnunin betur fylgt eftir niðurstöðum rannsókna sinna svo þær nýtist betur í þágu atvinnuveganna. Með þátttöku stofnunarinnar í slíkum fyrirtækjum þykir tryggt að tengsl við fyrirtæki sjávarútvegsins aukist.
    Stjórn Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins óskaði eftir því að ráðuneytið beitti sér fyrir breytingu á lögum stofnunarinnar í þessu skyni, en slík breyting hefur þegar verið gerð á lögum um Háskóla Íslands, sbr. lög nr. 8/1985, og Iðntæknistofnun Íslands, sbr. lög nr. 77/1986.
    Í frumvarpinu er lagt til að aðild Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins verði háð samþykki stjórnar stofnunarinnar og sjávarútvegsráðherra hverju sinni.
    Jafnframt er heimildin bundin við aðild að félögum með takmarkaðri ábyrgð þannig að áhætta stofnunarinnar verður takmörkuð við hlutafjárframlög.
    Einstakar greinar frumvarpsins þarfnast ekki nánari skýringa.