Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
111. löggjafarþing 1988–1989.
Nr. 14/111.
Þskj. 1062 — 273. mál.
Þingsályktun
um tónmenntakennslu í grunnskólum.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd til að athuga og koma með tillögur að samvinnu og samþættingu tónmenntakennslu í grunnskólum og tónlistarskólum landsins, með það fyrir augum
– að efla og auka tónmenntakennslu í grunnskólum,
– að koma á samvinnu milli grunnskóla og tónlistarskóla,
– að athuga hvernig best verði staðið að menntun kennara á þessu sviði,
– að það nám í tónlist, sem nemendur stunda utan lögboðins grunnskólanáms, geti í auknum mæli flust inn í húsnæði grunnskólanna,
– að samnýta húsnæði og kennara til að draga úr kostnaði og gera tónlistarnám aðgengilegra fyrir nemendur.
Nefndin ljúki störfum fyrir árslok 1989.
Samþykkt á Alþingi 5. maí 1989.