Ferill 499. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 499 . mál.
Ed.
1126. Breytingartillögur
við frv. til l. um ráðstafanir vegna kjarasamninga.
Frá Halldóri Blöndal, Júlíusi Sólnes, Danfríði Skarphéðinsdóttur
og Eyjólfi Konráð Jónssyni.
1. Við 1. gr. Síðasta málsgrein orðist svo:
. Lán skv. 1. mgr. þessarar greinar skal undanþegið stimpilgjaldi og greiðist úr ríkissjóði.
2. Við 2. gr. Við greinina bætist:
. Endurgreiða skal gjald af erlendum lánum sem tekin hafa verið fyrir gildistöku laga þessara en hafa þá ekki verið endurlánuð.
3. Við 4. gr. Upphaf greinarinnar orðist svo:
. Eftirtalin tollskrárnúmer falla brott úr a-lið 3. gr. laga nr. 97/1987, um vörugjald, sbr. 1. gr. laga nr. 95/1988.