Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 125 . mál.
Ed.
161. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um sakadóm í ávana- og fíkniefnamálum, nr. 29/1986.
(Eftir 2. umr. í Ed., 14. nóv.)
1. gr.
Við 2. gr. bætist ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi:Ef vafi þykir vera um mikilsverð sönnunar- eða lagaatriði getur dómarinn að fengnu samþykki dómsmálaráðuneytisins kvatt til setu í dómi með sér tvo dómendur. Sá sem kvaddur er til setu í dómi skal vera embættisdómari.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og taka eftir því sem við getur átt til mála sem ákært hefur verið í og þingfest hafa verið fyrir gildistöku þeirra.