Ferill 250. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 250 . mál.


Ed.

406. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 104/1988, um breytingu á lögum nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    

1. gr.

    1. gr. laga nr. 104/1988 orðist svo:
    Í Reykjavíkurlæknishéraði skal frestur þessi standa til loka júnímánaðar 1990.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Allt frá gildistöku fyrstu laga um heilbrigðisþjónustu, sbr. lög nr. 56/1973, sem tóku gildi 1. janúar 1974, hefur verið slegið á frest að taka upp kerfi heilsugæslu í Reykjavík. Síðast var þessi frestur ákveðinn í lögum nr. 104/1988 og stendur hann út yfirstandandi ár.
    Í tengslum við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, sem öðlast gildi um næstu áramót, hefur verið lagt fram frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, þar sem lagt er til að öll heilbrigðisþjónusta, sem rekin hefur verið á vegum sveitarfélaga, færist yfir til ríkisins sem ber frá og með 1. janúar nk. að standa undir öllum kostnaði við slíkan rekstur. Þegar hefur verið tekin ákvörðun um þessa yfirfærslu þegar eiga í hlut svokallaðar sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar í samræmi við lög nr. 87/1989, um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Eftir stendur að færa heilsugæsluna í Reykjavík og heilsugæslu, sem rekin er í tengslum við sjúkrahús, yfir auk starfsemi þeirra sjúkrahúsa sem rekin eru nú á vegum sveitarfélaganna.
    Ákveðið hefur ferið að fresta afgreiðslu málsins fram yfir áramót. Því er nauðsynlegt að framlengja enn um sinn frest til að koma upp kerfi heilsugæslu í Reykjavíkurlæknishéraði fram á mitt ár, en það er eina læknishéraðið sem ekki hefur enn tekið upp kerfi heilsugæslu í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu.