Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 445 . mál.


Nd.

1217. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á sjómannalögum, nr. 35/1985.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Hún vill taka sérstaklega fram að þótt þessi grein sé felld brott úr sjómannalögum hefur skipstjóri enn óskorað agavald til að halda uppi góðri reglu á skipi, t.d. ef skip er í háska statt, sbr. heimild í 70. gr. laganna. Í 87. gr. laganna er almennt refsiákvæði sem nær til sjómanna sem gerast sekir um yfirsjón við skyldustörf sín og í 82. gr. eru lögð viðurlög við því að ráðast á skipstjóra. Nefndin telur að með þessum ákvæðum sé tryggt að góð regla haldist um borð í íslenskum skipum, svo framarlega sem hægt er að tryggja slíkt með lögum. Er því óhætt að fella brott 81. gr. laganna eins og lagt er til í þessu frumvarpi. Þá er gerð sú tæknilega breyting að fella út tilvísun 74. gr. laganna í 81. gr., en í 74. gr. eru ákvæði um málssókn.
    Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Á undan 1. gr. komi ný grein er orðist svo:
    1. málsl. 1. mgr. 74. gr. orðist svo: Yfirsjónir þær, sem ræðir um í 1. mgr. 80. gr., skulu eigi sæta opinberri málssókn nema skipstjóri eða útgerðarmaður krefjist þess.

    Matthías Á. Mathiesen og Friðjón Þórðarson voru fjarstaddir afgreiðslu málsins.

Alþingi, 3. maí 1990.



Hjörleifur Guttormsson,


form., frsm.


Guðni Ágústsson,


fundaskr.


Málmfríður Sigurðardóttir.


Ólafur Þ. Þórðarson.


Árni Gunnarsson.