Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 128 . mál.


Ed.

1277. Nefndarálit



um frv. til l. um breytingu á l. nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd, lögum nr. 20 30. apríl 1986, um Siglingamálastofnun ríkisins, og ýmsum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála.

Frá 2. minni hl. allsherjarnefndar.



    Kvennalistakonur hafa frá upphafi borið umhverfismál og verndun náttúrunnar mjög fyrir brjósti, enda stendur það nærri konum að vilja sjá börnum sínum borgið í framtíðinni. Umhverfismál eru stór og viðamikill málaflokkur sem nauðsynlegt er að skipi verðugan sess í stjórnkerfi landsins. Umhverfismálin hafa hingað til fallið að einhverju leyti undir flest öll ráðuneytin. Afleiðingin er óstjórn og skörun. Því er brýnt að sameina öll verkefni á sviði umhverfismála undir eitt ráðuneyti og tryggja virka og hagkvæma stjórn og markvissa umhverfisvernd. Kvennalistakonur telja að stofnun umhverfisráðuneytis sé besta og öruggasta leiðin til að bæta úr þeim spjöllum sem gáleysisleg umgengni mannsins við landið hefur haft í för með sér og til að tryggja þá faglegu yfirsýn sem nauðsynleg er á sviði umhverfisverndar.
    Á 111. löggjafarþingi lögðu þingkonur Kvennalistans fram þingsályktunartillögu um stofnun umhverfisráðuneytis (150. mál). Auk þess hafa kvennalistakonur átt frumkvæði að mörgum málum á sviði umhverfisverndar og flutt tillögur þar um á Alþingi. Frumvarp þetta er fyrsta skrefið í þá átt að tryggja að einn aðili í stjórnkerfinu hafi yfirsýn yfir náttúruauðlindir landsins, nýtingu þeirra og verndun. Kvennalistakonur hefðu viljað flytja ýmis fleiri verkefni á sviði umhverfismála til hins nýja ráðuneytis en flytja þó einungis tvær breytingartillögur við frumvarpið að þessu sinni. Í ljósi þeirrar staðreyndar að stærsta og alvarlegasta umhverfisvandamálið á Íslandi er gróðureyðing og sandfok telja kvennalistakonur að landgræðsla og skógrækt hljóti að verða eitt af mikilvægustu verkefnum umhverfisráðuneytis. Til samræmis við þá skoðun Kvennalistans fela breytingartillögurnar í sér að Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins verði fluttar frá
landbúnaðarráðuneytinu til umhverfisráðuneytis, þó verði ræktun nytjaskóga og skjólbelta áfram í umsjá landbúnaðarráðuneytis.
    Annar minni hl. leggur áherslu á að áfram verði unnið að því að flytja verkefni til umhverfisráðuneytis í því skyni að tryggja þá heildarsýn og þá faglegu þekkingu sem í slíku ráðuneyti verður að vera.

Alþingi, 5. maí 1990.


Danfríður Skarphéðinsdóttir.