Ferill 367. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 367 . mál.


586. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um framlag sveitarfélaga til félagslegra íbúða.

Frá Valgerði Sverrisdóttur.



    Hvenær er áformað að ákvæði 10. gr. laga nr. 1/1992 (bandorms) um 3,5% óafturkræft framlag sveitarfélaga af kaup- eða kostnaðarverði félagslegra íbúða komi til framkvæmda?
    Verður innheimt gjald af íbúðum sem eru í byggingu við gildistöku laganna?
    Hvenær á byggingartímanum á að greiða gjaldið?
    Verður krafist gjalds af byggingu stúdentagarða?