Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 97 . mál.
500. Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á l. um málefni aldraðra, nr. 82/1989, með síðari breytingu.
Frá meiri hluta heilbrigðis- og trygginganefndar (SigG, SP, LMR, SAÞ, GHall
).B-liður 1. gr. orðist svo:
Á eftir 3. tölul. 1. mgr. kemur nýr töluliður er orðast svo: Að veita rekstrarfé á árunum 1993, 1994 og 1995 til stofnana fyrir aldraða í samræmi við ákvæði fjárlaga, þó aldrei meira en 55% af heildarúthlutun sjóðsins á árinu.