Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 75 . mál.
475. Frumvarp til lánsfjárlaga
fyrir árið 1994.
(Eftir 2. umr., 20. des.)
I. KAFLI
Lántökur ríkissjóðs.
1. gr.
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að taka að láni allt að 27.750 m.kr. á árinu 1994.2. gr.
Lánsfé skv. 1. gr. skal ráðstafað í samræmi við ákvæði fjárlaga fyrir árið 1994 og þessara laga.3. gr.
Fjármálaráðherra er heimilt að endurlána allt að 6.240 m.kr. af fjárhæð skv. 1. gr. til eftirtalinna aðila:II. KAFLI
Ríkisábyrgðir.
4. gr.
Eftirtöldum aðilum, sem heimild hafa í sérlögum til lántöku, er heimilt að nýta þær á árinu 1994 með þeim takmörkunum sem tilgreindar eru í 1.–9. tölul. þessarar greinar, sbr. 13. gr. laga nr. 84/1985, um breytingu á lögum nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga:5. gr.
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð lántökur eftirtalinna aðila á árinu 1994:
III. KAFLI
Ýmis ákvæði um lánsfjármál.
6. gr.
Lántökur samkvæmt lögum þessum skulu fara fram innan lands eða utan.7. gr.
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs getur heimilað þeim aðilum sem njóta ríkis-ábyrgðar á lántökum sínum:8. gr.
Hyggist aðilar, sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum, nýta heimildir skv. II. kafla eða 7. gr. skulu þeir gæta ákvæða 2. mgr. 7. gr. laga nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins.
9. gr.
Yfirtekin lán og ábyrgðir veittar á lántökum þriðja aðila, eða milliganga um töku lána þeirra, skulu rúmast innan þeirra heimilda sem tilgreindar eru í II. kafla.10. gr.
Erlendar fjárhæðir skulu miðast við kaupgengi íslensku krónunnar samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka Íslands á staðfestingardegi lánsfjárlaga.11. gr.
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að gefa út og selja, innan heimilda lánsfjárlaga hvers árs, einn eða fleiri flokka alþjóðabréfa ríkissjóðs er hljóði upp á greiðslu í erlendri mynt. Þrátt fyrir ákvæði 39. gr. laga nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o.fl., er fjármálaráðherra heimilt að gefa þessi bréf út í formi handhafabréfa, enda skal sala til innlendra aðila fara fram með milligöngu aðila sem hafa leyfi viðskiptaráðherra til verðbréfamiðlunar og þau varðveitt á sérstökum nafnskráðum reikningum viðskiptamanns, sbr. 16. gr. laga nr. 9/1993, um verðbréfaviðskipti.
IV. KAFLI
Gildistökuákvæði.
12. gr.
Lántökuheimildir og heimildir til ríkisábyrgða, sem tilgreindar eru í I.–III. kafla laga þessara, gilda á árinu 1994. Heimildir verða þó nýttar til 1. apríl 1995 standi sérstaklega á og samþykki fjármálaráðherra komi til.13. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.