Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 460 . mál.


691. Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)



1. gr.


    Ríkisborgararétt skulu öðlast:
    Annisius, Matthias Constantin, verkamaður á Húsavík, f. 3. desember 1951 í Þýskalandi.
    Caamic, Erlinda D., verkakona í Reykjavík, f. 3. desember 1944 á Filippseyjum.
    Fatalla, Corazon Surban, verkakona í Reykjavík, f. 19. maí 1954 á Filippseyjum.
    Hans Alan Tómasson, verkamaður í Kópavogi, f. 13. september 1975 í Reykjavík.
    Hanson, Bert, forstjóri í Reykjavík, f. 11. nóvember 1930 í Tékkóslóvakíu.
    Hrafnhildur Valdimarsdóttir, verkakona í Reykjavík, f. 12. febrúar 1931 í Reykjavík.
    Lemarquis, Gérard Roger, háskólakennari í Reykjavík, f. 8. janúar 1948 í Frakklandi.
    Ludvigsen, Peter Mogens, sjómaður í Hafnarfirði, f. 19. ágúst 1948 í Danmörku.
    Miller, Jóhannes, barn í Hafnarfirði, f. 22. febrúar 1982 í Reykjavík.
    Mikael Nikulásson, nemi í Reykjavík, f. 20. nóvember 1974 í Reykjavík.
    Nueva, Margie Mostar, verkakona í Reykjavík, f. 7. nóvember 1952 á Filippseyjum.
    Rabasca, Kristofer Erik, auglýsingateiknari í Reykjavík, f. 8. desember 1968 í Bandaríkjunum.
    Tate, Beverley Sue, kennari í Reykjavík, f. 17. desember 1946 í Bandaríkjunum.
    Vosk, Theodore, eftirlaunamaður í Garðabæ, f. 23. janúar 1913 í Bandaríkjunum.
    Zak, Irena Puhar, filmutæknir í Mosfellsbæ, f. 5. desember 1967 í Slóveníu.

2. gr.


    Þeir sem heita nöfnum sem ekki fullnægja reglum laga um mannanöfn, nr. 37 27. mars 1991, skulu ekki öðlast íslenskt ríkisfang samkvæmt lögum þessum fyrr en fullnægt er ákvæðum 15. gr. laga um mannanöfn. Sama gildir um börn þeirra.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Umsækjendur þeir, sem teknir hafa verið á lagafrumvarp þetta, fullnægja skilyrðum sem sett hafa verið af allsherjarnefnd Alþingis.
     Frumvarp þetta er annað frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem borið er fram á yfirstandandi 117. löggjafarþingi. Hið fyrra var borið fram á haustþingi og var samþykkt í desember.