Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 84 . mál.


122. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um þingfararkaup og þingfararkostnað, nr. 88/1995.

Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar (JóhS).



    Við bætist ný grein er verði 1. gr. og orðist svo:
                  Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:
                  Ráðherrar eiga ekki rétt á greiðslu samkvæmt þessari grein.
         Varatillaga:
                  2. málsl. 2. mgr. 9. gr. laganna orðist svo: Heimilt er að greiða alþingismönnum, öðrum en ráðherrum, starfskostnað samkvæmt þessari málsgrein sem fasta fjárhæð í stað endurgreiðslu samkvæmt reikningum.
    Við 1. gr. (er verði 2. gr.). Greinin orðist svo:
                  16. gr. laganna fellur brott.

























Prentað upp.