Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 308 . mál.


843. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands, nr. 13 30. mars 1992.

Frá minni hluta sjávarútvegsnefndar.



    Frumvarpið tengist frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991. Það frumvarp hefur nú verið afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með breytingartillögum.
    Jafnframt því frumvarpi hafði nefndin til umfjöllunar tvö önnur þingmál, 242. og 307. mál, sem bæði fjölluðu um það að leyfa beina fjárfestingu í afmörkuðum mæli í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Niðurstaða meiri hluta nefndarinnar varð eigi að síður sú að heimila einungis óbeina eignaraðild, þó þannig að útlendingar geti átt allt að 62% í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.
    Þar sem um er að ræða viðurkenningu á því að útlendingar séu eignaraðilar í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum þarf að breyta lögunum um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands þannig að fyrirtæki, sem geta verið allt að 62% í eigu útlendinga, geti áfram stefnt skipum sínum til veiða í landhelginni. Því er það frumvarp um breytingu á nefndum lögum fram komið.
    Meiri hlutinn hefur nú afgreitt frumvarpið með hliðstæðri breytingartillögu þeirri sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar gerði við frumvarp ríkisstjórnarinnar um óbeina eignaraðild.
    Undirrituð standa ekki að þeirri afgreiðslu frekar en fulltrúar þeirra flokka sem þau eru fulltrúar fyrir í efnahags- og viðskiptanefnd, enda sannfærð um að óbein eignaraðild, að hluta staðfesting á því ástandi sem nú þrífst ólöglega, sé ekki sú breyting sem íslenskur sjávarútvegur þarfnast helst og gildi þá einu hvort prósentan hentar núverandi stöðu allra fyrirtækja. Allra síst hefur þessi breyting gildi fyrir fiskvinnsluna sem ætti að vera skilgreind sem iðnaður og fá sem slík að njóta þeirra kosta sem kunna að felast í beinni eignaraðild erlendra aðila eins og annar iðnaður í landinu.

Alþingi, 19. apríl 1996.



Svanfríður Jónasdóttir,

Sighvatur Björgvinsson.


frsm.