Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 442 . mál.
1130. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 3/1987, um fjáröflun til vegagerðar, með síðari breytingum.
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
94.273 kr. af fólksbifreiðum að eigin þyngd allt að 999 kg, 113.163 kr. af fólksbifreiðum að eigin þyngd 1.000–1.499 kg og 132.053 kr. af fólksbifreiðum að eigin þyngd 1.500–1.999 kg. Af bifreiðum þyngri en 2.000 kg skal gjaldið hækka um 7.555 kr. fyrir hver 200 kg.
Fjármálaráðherra getur með reglugerð ákveðið að aðrar reglur gildi um skráningu í akstursbók vegna notkunar eftirvagna sem skráðir eru hér á landi og eru 6.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd.
Þungaskatti, álagi og viðurlögum fylgir lögtaksréttur. Jafnframt fylgir þungaskatti og álagi lögveð í viðkomandi ökutæki.