Ferill 148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 148 . mál.
903. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 69/1994, um sölu notaðra ökutækja.
(Eftir 2. umr., 4. apríl.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Lög þessi taka til sölu notaðra skráningarskyldra ökutækja sem fram fer með eftirgreindum hætti:
Lögin taka ekki til nauðungarsölu notaðra ökutækja.
2. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Hver sá sem vill reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki skal hafa til þess sérstakt leyfi viðskiptaráðherra.
Viðskiptaráðuneytið skal halda skrá yfir þá sem leyfi hafa til starfsemi samkvæmt lögum þessum.
Heimilt er bifreiðasala að leggja inn til ráðuneytisins starfsleyfi sitt. Óheimilt er honum að segja upp starfsábyrgðartryggingu sinni fyrr en að fenginni staðfestingu ráðuneytisins á innlögn leyfisins.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:Aðili sem sviptur hefur verið leyfi skv. 9. gr. skal sitja námskeið og standast prófkröfur, sbr. 6. tölul., áður en honum er veitt starfsleyfi á ný.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:5. gr.
Á eftir 1. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Bifreiðasali skal með áberandi hætti vekja athygli á gjaldskrá fyrir söluþóknun þar á meðal þegar um skipti á bifreiðum er að ræða. Einnig er skylt að leyfisbréf vegna starfseminnar liggi frammi á starfsstöð.
6. gr.
Fyrirsögn III. kafla laganna verður: Eftirlit.7. gr.
9. gr. laganna orðast svo:Eftirlit með starfsemi bifreiðasala er í höndum lögreglustjóra í því umdæmi þar sem starfsstöð bifreiðasala er.
Nú fylgir bifreiðasali ekki lögum og reglum sem um starfsemi þessa gilda þrátt fyrir tilmæli lögreglustjóra eða fullnægir ekki lengur skilyrðum laganna, og skal þá lögreglustjóri tilkynna það viðskiptaráðherra sem sviptir viðkomandi starfsleyfi.
Nú rekur aðili starfsemi sem leyfi þarf til samkvæmt lögum þessum án tilskilinna réttinda, og skal þá lögreglustjóri þegar í stað stöðva þá starfsemi, þar á meðal með lokun starfsstöðvar.
8. gr.
Við lögin bætist ný grein er verður 11. gr. laganna og orðast svo:
Viðskiptaráðherra fer með framkvæmd laga þessara. Honum er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þeirra með reglugerð.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.