Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 479 – 292. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og var umfjöllun hennar með svipuðu sniði og undanfarin ár. Formaður og einn nefndarmanna fóru yfir þær umsóknir um ríkisborgararétt sem nefnd inni bárust í því skyni að kanna hvort þær uppfylltu skilyrðin sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisborgararéttar, sbr. þskj. 723 á 118. löggjafarþingi. Síðan fjallaði nefndin um umsóknirnar.
    Við afgreiðslu á frumvarpinu hefur nefndin haft að leiðarljósi fyrrgreindar reglur um veit ingu ríkisborgararéttar. Umsóknir sem ekki hljóta afgreiðslu nú bíða þar til síðara frumvarp ið um ríkisborgararétt verður afgreitt á vorþingi, en þá koma óafgreiddar umsóknir aftur til skoðunar.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með þeim breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Þar er lagt til að 83 einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt.

Alþingi, 10. des. 1997.


                                       

Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Valgerður Sverrisdóttir.     


Árni R. Árnason.     



Guðrún Helgadóttir.     


Jón Kristjánsson.     


Jóhanna Sigurðardóttir.     



Kristján Pálsson.     


Guðný Guðbjörnsdóttir.     


Hjálmar Jónsson.