Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 510 – 153. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um einkaleyfi, nr. 17/1991, með síðari breytingum.
Frá iðnaðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Ögmund Þormóðsson frá iðn
Þá bárust nefndinni umsagnir frá Félagi garðyrkjumanna, Félagi umboðsmanna vöru
Frumvarp þetta er flutt vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/97 frá 31. júlí 1997 um að fella inn í EES-samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1610/96 frá 23. júlí 1996, um útgáfu viðbótarvottorðs um vernd plöntuvarnarefna. Reglu
Nefndin telur nauðsynlegt að til skýringar fylgi með frumvarpinu ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/97, en hún er viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1610/96. Reglugerðin er hins vegar birt sem fylgiskjal með greinargerð frumvarpsins þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir því í frumvarpinu að texti hennar öðlist lagagildi hér á landi. Nefndin telur augljóst að reglugerðinni sé ætlað að vera hluti laganna og eigi því að birtast sem fylgiskjal I með frumvarpinu og jafnframt sé nauðsynlegt að texti ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar birtist sem fylgiskjal II.
Iðnaðarnefnd mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 12. des. 1997.
Stefán Guðmundsson,
form., frsm.
Guðjón Guðmundsson.
Sighvatur Björgvinsson.
Sigríður A. Þórðardóttir.
Svavar Gestsson.
Pétur H. Blöndal.
Hjálmar Árnason.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Árni R. Árnason.