Ferill 333. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 623 – 333. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 84/1997, um búnaðargjald.
(Eftir 2. umr., 18. des.)
1. gr.
4. gr. laganna orðast svo:Gjaldskyldir búvöruframleiðendur skulu greiða fyrir fram upp í væntanlega álagningu með fimm jöfnum mánaðarlegum greiðslum mánuðina ágúst til desember á tekjuárinu. Fyrirframgreiðslan skal nema 2,65% af búnaðargjaldsstofni á næstliðnu tekjuári.
Gjalddagar fyrirframgreiðslu skv. 1. mgr. skulu vera fyrsti dagur mánaðanna ágúst til og með desember. Heimilt er gjaldanda að sækja um breytingu á fyrirframgreiðslu sem honum hefur verið gert að greiða skv. 1. mgr. Slíka umsókn skal senda skattstjóra er úrskurðar um breytingu greiðsluskyldunnar innan hæfilegs frests. Skattstjóri skal taka til greina umsókn gjaldanda ef fyrirsjáanlegt er að búnaðargjald breytist um sem nemur a.m.k. 25%, þó að lágmarki 10.000 kr. á milli ára.
2. gr.
a. 4. mgr. orðast svo:
Frá álögðu búnaðargjaldi skal draga þá fjárhæð sem greidd hefur verið fyrir fram skv. 4. gr. Greiði gjaldskyldur aðili ekki fyrirframgreiðslu á tilskildum tíma eða van
b. Á eftir orðinu „greiðslu“ í 5. mgr. kemur: innheimtu.
3. gr.
Fjármálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um fyrirframgreiðslur, álagningu, innheimtu og annað er varðar skattalega framkvæmd laga þessara.
4. gr.
a. Á eftir orðinu „innheimtu“ kemur: fyrirframgreiðslna.
b. Orðin „í staðgreiðslu“ falla brott.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.