Ferill 483. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1294 – 483. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 36/1993, um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og var stuðst við umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæmis.
    Í frumvarpinu er lagt til að bætt verði í lögin heimild fyrir kirkjugarðsstjórn til að ákvarða sérstakan minningarreit í kirkjugarði vegna horfins manns sem úrskurðaður hefur verið látinn og njóti slíkur reitur sömu friðhelgi og grafreitur.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.

Alþingi, 28. apríl 1998.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Jón Kristjánsson.



Jóhanna Sigurðardóttir.




Árni R. Árnason.     


Gunnlaugur M. Sigmundsson.     


Bryndís Hlöðversdóttir.     



Kristján Pálsson.



Guðný Guðbjörnsdóttir.



Hjálmar Jónsson.