Ferill 11. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1307 – 11. mál.



Breytingartillögur



við till. til þál. um bætt siðferði í opinberum rekstri.

Frá allsherjarnefnd.



     1.      Tillögugreinin orðist svo:
             Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til að kanna starfsskilyrði stjórn valda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög við réttarbrotum í stjórnsýslu. Í því skyni skal nefndin semja skýrslu um eftirtalin atriði:
       a.      Almennar efnisreglur stjórnsýsluréttarins.
                 Kanna ber hvaða óskráðu efnisreglum stjórnvöldum ber að fylgja þegar skýrum og fastmótuðum settum reglum sleppir og stjórnvöldum er eftirlátið svokallað frjálst mat við töku stjórnvaldsákvarðana. Gerð skal grein fyrir hvaða reglur gildi um meðferð slíks valds og hvort þær séu í samræmi við siðferðishugmyndir manna.
       b.      Stjórnkerfið og eftirlit með starfsemi stjórnvalda.
                 Kanna ber uppbyggingu stjórnkerfisins og að hve miklu leyti eftirlit er innbyggt í það sjálft og að hve miklu leyti það er utanaðkomandi.
       c.      Afleiðingar réttarbrota í stjórnsýslunni.
                 Kanna ber hvaða afleiðingar réttarbrot í stjórnsýslunni geta haft, meðal annars hvaða viðurlög eru við þeim og hverjir geta sætt ábyrgð samkvæmt þeim, þar á meðal stjórnsýsluviðurlögum, refsiábyrgð, bótaábyrgð opinberra starfsmanna og húsbónda ábyrgð hins opinbera.
       d.      Úrbætur.
                 Nefndin skal setja fram sjónarmið um leiðir sem færar eru til úrbóta í þeim tilvikum sem gefa tilefni til þess.
              Skýrsla nefndarinnar skal lögð fyrir Alþingi fyrir frestun funda á vorþingi 1999.
     2.      Heiti tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um könnun á starfsskilyrðum stjórnvalda, eftirliti með starfsemi þeirra og viðurlögum við réttarbrotum í stjórnsýsl unni.