Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 144 —  144. mál.



Fyrirspurn



til samgönguráðherra um rekstrarkostnað Pósts og síma.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hver voru laun, lífeyrisréttindi og önnur starfskjör stjórnenda Pósts og síma, sundurliðað eftir stöðuheitum, fjölda stjórnenda og milli kynja, föstum launum, öðrum greiðsl­um, eins og stjórnargreiðslum, og hvers konar þóknunum og hlunnindum, þ.m.t. bíla­hlunnindum og risnu á árunum 1993–96?
     2.      Hver var ferðakostnaður erlendis árlega á árunum 1993–96, að báðum árum meðtöldum, hve margar ferðir voru farnar hvert ár um sig, hvernig sundurliðast kostnaðurinn milli flugfargjalds, gistikostnaðar og dagpeningagreiðslna? Sérstaklega er óskað sund­urliðunar á fjölda ferða stjórnenda og að tilgreindur sé árlegur sundurliðaður kostnaður við þær og ferðir maka þeirra, sé um það að ræða.
     3.      Hvaða reglur giltu um bifreiðahlunnindi, risnu- og ferðakostnað stjórnenda?
     4.      Hver var árlegur risnukostnaður 1993–96, að báðum árum meðtöldum, sundurliðað eftir:
       a.      fastri risnu greiddri einstökum stjórnendum,
       b.      risnu greiddri samkvæmt reikningi,
       c.      helstu þáttum risnunnar og kostnaði við hvern þeirra, auk helstu tilefna risnunnar?
     5.      Var farið í laxveiðiferðir á vegum Pósts og síma? Ef svo er, hvernig skiptist árlegur kostnaður við þær á árunum 1993–96 milli laxveiðileyfa og annarra útgjalda vegna ferðanna. Hve margar ferðir voru farnar á ári hverju, hvert var farið, hverjir voru þátt­takendur í slíkum ferðum og hver voru tilefni þeirra?
     6.      Hverjir tóku ákvarðanir um ferðir stjórnenda erlendis og laxveiðar, sé um þær að ræða?


Skriflegt svar óskast.