Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 420  —  231. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um vegabréf.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason og Kolbein Árna­son frá dómsmálaráðuneyti og Jóhann Jóhannsson frá útlendingaeftirliti. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá ríkislögreglustjóra, útlendingaeftirliti, lögreglustjóranum í Reykjavík og Sýslumannafélagi Íslands.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um vegabréf í stað núgildandi laga sem eru frá árinu 1953. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir nokkrum breytingum. Í fyrsta lagi er lagt til að útgáfa vegabréfa verði í höndum ríkislögreglustjóra og skal hann meta hvort um­sækjandi uppfylli skilyrði til að fá útgefið vegabréf. Þó verður áfram unnt að sækja um vegabréf hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er gert ráð fyrir að ríkislögreglustjóri komi á fót neyðarþjónustu þannig að breytingin leiði ekki til vandræða fyrir ferðamenn sem þurfa á vegabréfi að halda með litlum fyrirvara. Önnur breyting sem lögð er til í frumvarpinu felst í því að vegabréf gildi framvegis aðeins fyrir einn einstakling og er þar með lagt til að ekki verði lengur hægt að skrá barn yngra en 15 ára í vegabréf náins aðstandanda. Breytingin er m.a. lögð til í því skyni að fyrirbyggja að börn verði numin á brott eða fari úr landi ásamt for­eldri sem ekki hefur forsjá barns en hefur nafn þess í vegabréfi sínu. Loks er lagt til að lög­festar verði reglur um afturköllun vegabréfa.
    Nefndin fjallaði m.a. um kostnað og gjald fyrir útgáfu vegabréfa. Gjald fyrir útgáfu vega­bréfa til útlanda er ákveðið í lögum um aukatekjur ríkissjóðs og er það nokkuð hærra en framleiðslu- og umsýslukostnaður. Með samþykkt frumvarpsins er þó ljóst að nokkur kostn­aðarauki verður á næstu árum, m.a. vegna útgáfu tölvulesanlegra vegabréfa og uppsetningar skrár um vegabréf sem ríkislögreglustjóra er ætlað að halda.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
     1.      Í fyrsta lagi eru lagðar til orðalagsbreytingar á 2. mgr. 5. gr. Lagt er til að orðið refsivist verði fellt brott úr ákvæðinu og orðið fangelsisrefsing sett í staðinn. Breytingin er í sam­ræmi við þær breytingar sem gerðar voru á almennum hegningarlögum og refsiákvæðum annarra laga á 122. þingi þar sem ákvæði um varðhaldsrefsingar og atriði tengd því voru felld brott úr lögunum.
     2.      Þá eru lagðar til orðalagsbreytingar á 1. mgr. 6. gr. sem miða að því að gera ákvæðið skýrara.
     3.      Einnig er lagt til að gerðar verði breytingar á aldursviðmiði í 2. mgr. 6. gr. og því breytt úr 16 árum í 18 ár. Eðlilegt þykir að miða við sama aldur og í 4. gr. þar sem kveðið er á um að við útgáfu vegabréfs til barns undir 18 ára aldri skuli liggja fyrir samþykki þess eða þeirra sem fara með forsjá barns. Einnig er breytingin í samræmi við ákvæði lög­ræðislaga og þá almennu skilgreiningu að um börn sé að ræða til 18 ára aldurs.
     4.      Loks er lögð til breyting á ákvæðum 2. mgr. 6. gr. varðandi gildistíma vegabréfa barna. Þar er lagt til að vegabréf barna gildi í fimm ár eins og nú er í stað þriggja ára eins og lagt er til í frumvarpinu. Barst nefndinni ábending um að núgildandi regla hefði reynst vel og þykir því óþarft að breyta henni.
    Ögmundur Jónasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. des. 1998.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Valgerður Sverrisdóttir.


Jóhanna Sigurðardóttir.



Kristján Pálsson.


Kristín Halldórsdóttir.


Jón Kristjánsson.



Árni R. Árnason.


Hjálmar Jónsson.