Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Nr. 1/123
Þskj. 620 — 296. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999 sem gerðir voru í Reykjavík 7. október 1998:
1. sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 1999;
2. bókun um sérstakar verndunarráðstafanir með tilliti til stjórnunar veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999;
3. samning milli Íslands og Færeyja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1999;
4. samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands, efnahagslögsögu Noregs og fiskveiðilögsögu Jan Mayen á árinu 1999; og
5. samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 1999.
Samþykkt á Alþingi 19. desember 1998.