Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 228  —  186. mál.




Breytingartillaga



við till. til þál. um framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur, Margréti Frímannsdóttur, Sighvati Björgvinssyni,


Guðrúnu Ögmundsdóttur, Jóhanni Ársælssyni,


Jóhönnu Sigurðardóttur og Össuri Skarphéðinssyni.


    Tillögugreinin orðist svo:
    Á grundvelli fyrirliggjandi skýrslu um umhverfisáhrif Fljótsdalsvirkjunar, greinargerðar um orkuöflun fyrir álver í Reyðarfirði, skýrslu um þjóðhagsleg áhrif álversins og athugunar á samfélagslegum áhrifum þess lýsir Alþingi yfir stuðningi við áform um gerð Fljótsdalsvirkjunar, sbr. lög um raforkuver, nr. 60/1981, samning ríkisstjórnar Íslands og Landsvirkjunar, dags. 11. ágúst 1982, og lög um Landsvirkjun, nr. 42/1983, enda hefjist framkvæmdir ekki nema að fengnu jákvæðu mati á umhverfisáhrifum framkvæmdanna samkvæmt ákvæðum laga nr. 63/1993.