Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 947, 125. löggjafarþing 549. mál: vörugjald af ökutækjum (lækkun gjalda).
Lög nr. 8 6. apríl 2000.
Á fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í 4. gr., skal lagt vörugjald í eftirfarandi gjaldflokkum miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Ákvæði til bráðabirgða.
Endurgreiða skal mismun greidds vörugjalds af bifreiðum sem ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum, sbr. d-lið 3. gr. laga þessara, og tollafgreiddar eru eftir gildistöku þeirra og þess vörugjalds sem borið hefði að greiða ef bifreið hefði verið tollafgreidd eftir 15. maí 2000. Endurgreiðsla skal háð því að skilyrðum d-liðar 3. gr. laga þessara til lækkunar vörugjalds sé fullnægt.
Þingskjal 947, 125. löggjafarþing 549. mál: vörugjald af ökutækjum (lækkun gjalda).
Lög nr. 8 6. apríl 2000.
Lög um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.
1. gr.
3. gr. laganna orðast svo:Á fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í 4. gr., skal lagt vörugjald í eftirfarandi gjaldflokkum miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
I | 0–2.000 | 30 |
II | Yfir 2.000 | 45 |
2. gr.
Í stað hlutfallstölunnar „70%“ í 6. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: 30%.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Við 1. tölul. 2. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Bifreiðar fatlaðra sem eru sérstaklega búnar til flutnings á þeim, þ.m.t. búnar hjólastólalyftu, og samþykktar af Tryggingastofnun ríkisins.
- 3. tölul. 2. mgr. fellur brott.
- 4. tölul. 2. mgr. orðast svo: Vörugjald af leigubifreiðum til fólksflutninga skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
Flokkur Sprengirými aflvélar Gjald í % I 0–2.000 10 II Yfir 2.000 13 - Við 2. mgr. bætist nýr töluliður sem orðast svo: Vörugjald af bifreiðum sem ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum skal vera:
Flokkur Sprengirými aflvélar Gjald í % I 0–2.000 10 II Yfir 2.000 13 - 3. mgr. orðast svo:
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi, að frátöldum d-lið 3. gr. laga þessara sem tekur gildi 15. maí 2000.Samþykkt á Alþingi 5. apríl 2000.