Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1111  —  325. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum.

Frá menntamálanefnd.



     1.      Við 1. gr. Á eftir orðinu „rafrænum“ í 1. málsl. 2. efnismgr. komi: hætti.
     2.      Við 2. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
                  a.      Á eftir 4. tölul. 2. mgr. kemur nýr töluliður sem orðast svo: eftirgerðar véllæsilegra eintaka gagnagrunns.
                  b.      Í stað 3. og 4. mgr. koma fjórar nýjar málsgreinar sem orðast svo:
                     Höfundar verka, sem útvarpað hefur verið eða gefin hafa verið út á hljóðriti eða myndriti, eiga rétt á sérstöku endurgjaldi vegna upptöku verka þeirra til einkanota á bönd, diska, plötur eða aðra þá hluti, í hvaða formi sem er, sem taka má upp á hljóð og/eða myndir með hliðrænum eða stafrænum hætti. Enn fremur skal greiða endur gjald af tækjum sem einkum eru ætluð til slíkrar upptöku. Gjöld þessi skulu greidd hvort sem um innlenda eða innflutta framleiðslu er að ræða og hvílir skylda til að svara gjöldunum á innflytjendum og framleiðendum.
                        Gjöld skv. 3. mgr. skulu nema:
                      1.      Af tækjum skal endurgjaldið vera 4% af innflutningsverði eða framleiðsluverði ef um innlenda framleiðslu er að ræða.
                      2.      Af böndum, diskum, plötum eða öðrum hlutum til upptöku hljóðs eingöngu skal gjaldið nema 35 kr.
                      3.      Af böndum, diskum, plötum eða öðrum hlutum til upptöku mynda, eftir atvikum ásamt hljóði, skal gjaldið nema 100 kr.
                      4.      Gjöld skv. 2. og 3. tölul. eru miðuð við að lengd flutningstíma sé allt að 180 mínútur fyrir hluti til hljóðupptöku og allt að 240 mínútur fyrir hluti til mynd upptöku. Sé flutningstími lengri hækkar gjaldið hlutfallslega sem því nemur.
                     Menntamálaráðherra setur nánari reglur um gjöld skv. 3. og 4. mgr., þar á meðal af hvaða hlutum og tækjum gjöldin skuli greidd. Lækka má fjárhæðir, sem greindar eru í 4. mgr., af böndum, diskum, plötum eða öðrum hlutum ef ætla má að einungis hluti þeirra sé ætlaður til upptöku skv. 3. mgr.
                        Samtök höfundaréttarfélaga, þar með talin félög listflytjenda og framleiðenda,                sjá um innheimtu á gjöldum skv. 3. mgr. og ráðstafa þeim. Samtökunum er heimilt að fela tollyfirvöldum innheimtu á gjöldum þeim sem innflytjendur skulu standa skil á. Samtökunum skulu settar samþykktir í samvinnu við menntamálaráðuneytið og eru þær háðar staðfestingu þess. Í samþykktunum skal meðal annars ákveða skiptingu tekna með aðildarfélögum og þar má einnig mæla fyrir um framlög til styrktar útgáfu hljóð- og myndrita.
     3.      Við 3. gr. Í stað orðanna „Þeim sem hefur rétt til að nota tölvuforrit“ í fyrri málslið efnismálsgreinarinnar komi: Eiganda eða lögmætum notanda eintaks af tölvuforriti.
     4.      Við 4. gr. 2. málsl. efnismálsgreinar b-liðar falli brott.
     5.      Við 5. gr. Greinin orðist svo:
              Í stað 3. mgr. 25. gr. b laganna koma tvær nýjar málsgreinar sem orðast svo:
             Réttur höfundar skv. 1. mgr. er óframseljanlegur og helst meðan höfundaréttur hans er í gildi, sbr. 43. gr. Höfundaréttarsjóður myndlistarmanna eða annar sjóður sem kæmi í hans stað annast innheimtu gjalda skv. 1. mgr., svo og skil á þeim til höfunda að frá dregnu hæfilegu endurgjaldi vegna innheimtunnar. Að höfundi látnum fellur rétturinn til skylduerfingja, en sé þeim ekki til að dreifa rennur gjaldið til Höfundaréttarsjóðs myndlistarmanna eða annars sjóðs sem kæmi í hans stað. Krafa rétthafa á hendur sam tökunum er gjaldkræf innan þriggja ára frá lokum þess árs er endursala fór fram. Fyrning kröfu rofnar við skriflega greiðsluáskorun frá rétthafa.
             Aðili sem fæst við endursölu listaverka í atvinnuskyni skal ársfjórðungslega senda skilagrein um sölu listaverka á næstliðnu tímabili, staðfesta af löggiltum endurskoðanda, til samtaka þeirra sem getið er í 3. mgr. Skylt er að senda skilagrein fyrir þau tímabil er engin sala fer fram hjá seljanda. Menntamálaráðherra skal að fengnum tillögum samtaka rétthafa skv. 3. mgr. setja nánari reglur um form skilagreina og innheimtu gjaldsins.
     6.      Við 11. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 54. gr. laganna:
                  a.      Á eftir 1. tölul. 2. mgr. kemur nýr töluliður er orðast svo: Vanræksla aðila sem fæst við endursölu listaverka í atvinnuskyni á að senda samtökum rétthafa skilagrein um seld listaverk skv. 4. mgr. 25. gr. b.
                  b.      3. tölul. 2. mgr., er verður 4. tölul., orðast svo: Brot á 1. mgr. 45. gr. og 3. mgr. sömu greinar, sbr. tilvitnanir þar í 4. gr., 1. mgr. 28. gr. og fyrirmæli sem getur í 2. mgr. 31. gr.
     7.      Við 15. gr. Greinin orðist svo:
             61. gr. laganna kemur í stað 63. gr. og við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
             Vernd gagnagrunna skv. 50. gr. sem gerðir eru á tímabilinu frá 1. janúar 1983 til gild istöku laganna helst til 1. janúar 2016.
     8.      Á eftir 16. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
              Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
             Frá og með gildistöku laga þessara skal menntamálaráðherra undirbúa niðurlagningu Myndlistarsjóðs Íslands með skipun sérstakrar skilanefndar. Skal skilanefnd um niður lagningu Myndlistarsjóðs Íslands skipuð einum fulltrúa samkvæmt tilnefningu Sam bands íslenskra myndlistarmanna og tveimur án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar.
             Uppgjöri skilanefndar á fjárreiðum Myndlistarsjóðs Íslands skal lokið innan sex mán aða frá gildistöku laga þessara.