Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 498 — 197. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Margréti Frímannsdóttur,
Ögmundi Jónassyni og Jóhanni Ársælssyni.
1. Við 1. gr. Í stað orðsins „sjö“ í 1. efnismgr. b-liðar komi: 18.
2. Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. A-liðar 69. gr. laganna skulu barnabætur greiddar með öllum börnum yngri en 16 ára árin 2001 og 2002.