Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 506  —  1. mál.




Breytingartillaga



við frv. til fjárlaga fyrir árið 2002.

Frá Jóni Bjarnasyni.



    Við 7. gr. Nýr liður:
    7.13    Að verja allt að 1 milljarði króna til að greiða úr bráðum fjárhagsvanda sveitarfélaganna, m.a. vegna félagslega íbúðakerfisins. Félagsmálaráðherra setur nánari reglur um úthlutunina.

Greinargerð.


    Mörg sveitarfélög á landsbyggðinni búa nú við háar skuldir og mikla greiðsluerfiðleika, m.a. vegna skulda við félagslega íbúðarkerfið og aukins kostnaðar við einsetningu grunnskólans og yfirfærslu hans til sveitarfélaganna. Þar telja mörg þeirra mjög á sig hallað í samskiptum við ríkisvaldið. Hvor tveggja þessara málaflokka bíður úrlausnar á landsvísu.
    Þessi mál og önnur er varða verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga eru óútkljáð en þau verður að leysa með nýju fjármagni til sveitarfélaganna. Óviðunandi er að einstök sveitarfélög séu knúin til að selja bestu eignir sínar og þjónustustofnanir til að leysa bráðan greiðsluvanda heldur ber að einhenda sér í að leysa fjárhagsvanda sveitarfélaganna á landsvísu. Hér er lagt til að heimilt verði að ráðstafa allt að 1 milljarði kr. á fjárlögum sem fyrsta skref í að leysa þennan vanda án þess að taka af sveitarfélögum eignir í staðinn.