Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1308 — 582. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 20. apríl.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
1. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda,
með síðari breytingum.
2. gr.
Skattstjóri skal tilkynna launagreiðanda sem leggur fram áætlun um tekjur sínar í samræmi við tímafrest 1. mgr. eða 1. mgr. 19. gr. um ákvörðun reiknaðs endurgjalds eigi síðar en 15 dögum fyrir eindaga, sbr. 3. mgr. 20. gr. Ákvörðun skattstjóra skv. 1. málsl. eða áætlun skattstjóra skv. 21. gr. um greiðsluskylda fjárhæð, sbr. 1. mgr., má skjóta til skattstjóra innan 15 daga frá póstlagningardegi tilkynningar. Innan 15 daga frá lokum kærufrests skal skattstjóri hafa úrskurðað kærur.
Kæruúrskurði skattstjóra skv. 3. mgr. má skjóta til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá dagsetningu úrskurðar skattstjóra, sem tekur endanlega ákvörðun um fjárhæð endurgjalds á staðgreiðsluári.
3. gr.
Hver sá sem telst launagreiðandi skv. 7. gr. skal ótilkvaddur og eigi síðar en 8 dögum áður en starfsemi hans hefst tilkynna ríkisskattstjóra um starfsemi sína þar sem tilgreint er nafn, heimili og kennitala launagreiðandans.
III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum.
4. gr.
5. gr.
a. Á eftir orðinu „(OECD)“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og Liechtenstein.
b. Á eftir orðinu „OECD“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: eða Liechtenstein.
c. Á eftir orðinu „OECD“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: eða Liechtenstein.
IV. KAFLI
Gildistaka laganna.
6. gr.