Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 727. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1355 —  727. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 55/2002, um útflutning hrossa.

(Eftir 2. umr., 7. maí.)



1. gr.

    1. gr. laganna orðast svo:
    Útflutningur á hrossum er heimill án sérstakra leyfa að uppfylltum skilyrðum laga þessara og stjórnvaldsfyrirmælum settum samkvæmt þeim. Þó má ekki flytja úr landi yngri hross en fjögurra mánaða eða fylfullar hryssur sem gengnar eru með sjö mánuði eða lengur.

2. gr.

    Á eftir orðunum „hæft til útflutnings með tilliti til“ í 1. málsl. 2. gr. laganna kemur: aldurs.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.