Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 302. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 546  —  302. mál.



Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á l. nr. 3/2006, um ársreikninga.


Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðmund Guðbjarnason frá ársreikningaskrá og Þórð Reynisson frá fjármálaráðuneyti. Nefndinni hafa auk þess borist umsagnir um málið.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á XII. kafla laga um ársreikninga en í honum eru ákvæði um viðurlög og málsmeðferð. Markmið frumvarpsins er einkum að auka skil ársreikninga til ársreikningaskrár og gera málsmeðferð skilvirkari en þrátt fyrir skýra lagaskyldu þess efnis er ávallt nokkur fjöldi félaga sem hvorki semur ársreikning né skilar honum. Breytingar þær sem lagðar eru til með frumvarpinu eru tvíþættar.
    Fyrri breytingin er sú að horft verði til stærðar félags hvað varðar alvöru þess að semja hvorki né skila ársreikningi. Sérstaklega er skilgreint í frumvarpinu hvað teljist minni félög og hvað stærri. Með stærri félögum er átt við félög sem falla undir 1. tölul., 2. tölul. og 2. málsl. 4. tölul. 1. gr. laganna. Undir þessi ákvæði heyra í fyrsta lagi hlutafélög sem hafa verðbréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, svo og dótturfélög innifalin í samstæðureikningsskilum þeirra, í öðru lagi hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög, samvinnufélög og samvinnusambönd og gagnkvæm vátrygginga- og ábyrgðarfélög ef félögin fara fram úr tvennum af eftirfarandi stærðarmörkum tvö ár í röð: að eignir nemi 230 millj. kr., að rekstrartekjur nemi 460 millj. kr. eða að fjöldi ársverka á reikningsári sé 50, og í þriðja lagi sameignarfélög og önnur félög með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, svo og samlagsfélög, sem eru skráð í firmaskrá, ef félögin fara fram úr þeim stærðarmörkum sem gerð var grein fyrir hér framar. Með minni félögum er átt við félög sem heyra undir 3. tölul. eða 1. málsl. 4. mgr. 1. gr. laganna. Þetta eru félög með takmarkaðri ábyrgð félagsaðila sem stunda atvinnurekstur og falla ekki undir 1. og 2. tölul., svo og sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, sbr. lög nr. 33/1999. Undir þetta heyra einnig sameignarfélög og önnur félög með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, svo og samlagsfélög, ef félagsaðilar þeirra eru eingöngu félög sem talin upp eru í 1.–3. tölul. Með þessari aðgreiningu munu umrædd brot stjórnarmanna og framkvæmdastjóra minni félaga varða sektum en hvað stærri félögin varðar liggur skv. 120. gr. laganna allt að sex ára fangelsi við brotum stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra þeirra.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður sú háttsemi talin meiri háttar brot að framkvæmdastjóri eða stjórnarmenn stærri félaga vanræki að semja eða skila inn ársreikningi eða samstæðureikningi. Einnig mun það teljast meiri háttar brot ef framkvæmdastjóri eða stjórnarmenn einhverra þeirra félaga, sem skilaskyld eru skv. 1. gr. laganna, rangfæra ársreikning eða samstæðureikning, byggja samningu ekki á niðurstöðu bókhalds eða láta rangar eða villandi skýringar fylgja. Hvað minni félög varðar mun sú háttsemi teljast refsiverð ef framkvæmdastjóri eða stjórnarmenn þeirra semja ekki ársreikning eða samstæðureikning, en það telst ekki meiri háttar brot.
    Síðari breytingin lýtur að því að ársreikningaskrá, sem hefur það hlutverk að taka á móti, geyma og birta ársreikninga skilaskyldra félaga, verður veitt heimild til að leggja sektir á þau félög sem teljast til minni félaga og vanrækja að standa skil á ársreikningi eða samstæðureikningi. Þá getur ársreikningaskrá lagt sektir á öll félög sem eru skilaskyld skv. 1. gr. laganna og skila ekki fullnægjandi upplýsingum eða skýringum með ársreikningi eða samstæðureikningi. Samkvæmt gildandi lögum eru úrræði ársreikningaskrár til að bregðast við vanskilum afar takmörkuð. Samkvæmt b-lið 3. gr. frumvarpsins er um hlutlæga ábyrgð að ræða þar sem heimild til að leggja á sektir er ekki háð því hvort brot verði rakið til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns félags.
    Ögmundur Jónasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 5. des. 2006.


Pétur H. Blöndal,

form., frsm.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Dagný Jónsdóttir.


Lúðvík Bergvinsson.

Birgir Ármannsson.

Ágúst Ólafur Ágústsson.


Ásta Möller.

Sæunn Stefánsdóttir.