Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 648. máls.
Þskj. 1388 — 648. mál.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2005 frá 2. desember 2005, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1228/2003 frá 26. júní 2003 um skilyrði fyrir aðgangi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri, tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins 2003/54/EB frá 26. júní 2003 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku og um niðurfellingu á tilskipun 96/92/EB, og 2003/55/EB frá 26. júní 2003 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir jarðgas og um niðurfellingu á tilskipun 98/30/EB, ásamt ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2003/796/EB frá 11. nóvember 2003 um að koma á fót evrópskum hópi eftirlitsaðila með rafmagni og gasi.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Nr. 24/133.
Þskj. 1388 — 648. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2005, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2005 frá 2. desember 2005, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1228/2003 frá 26. júní 2003 um skilyrði fyrir aðgangi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri, tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins 2003/54/EB frá 26. júní 2003 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku og um niðurfellingu á tilskipun 96/92/EB, og 2003/55/EB frá 26. júní 2003 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir jarðgas og um niðurfellingu á tilskipun 98/30/EB, ásamt ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2003/796/EB frá 11. nóvember 2003 um að koma á fót evrópskum hópi eftirlitsaðila með rafmagni og gasi.
Samþykkt á Alþingi 17. mars 2007.