Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1410, 133. löggjafarþing 686. mál: vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (metangasbifreiðar).
Lög nr. 77 30. mars 2007.
Bifreiðar sem gjaldskyldar eru skv. 3. gr. laganna og búnar eru vélum og öðrum búnaði sem miðast við að bifreið nýti metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skulu vera undanþegnar vörugjaldi samkvæmt lögum þessum til 31. desember 2008.
Tilgreina skal í ökutækjaskrá ef vörugjald hefur verið fellt niður skv. 1. mgr. svo og stærð eldsneytisgeyma.
Óheimilt er að breyta bifreiðum skv. 1. mgr. með brottnámi metangasbúnaðar eða með breytingum á eldsneytisgeymum.
Ef brotið er gegn 3. mgr. skal skráður eigandi bifreiðar, sem notið hefur niðurfellingar vörugjalds skv. 1. mgr., greiða til tollstjóra fullt vörugjald skv. 3. gr. ásamt 50% álagi.
Tollstjórar hafa eftirlit með framkvæmd þessa ákvæðis og geta gert þær athuganir sem taldar eru nauðsynlegar til að kanna hvort gerðar hafi verið breytingar á bifreið andstætt 3. mgr., þar á meðal að skoða eldsneytisgeyma og vél ökutækis.
Fjármálaráðherra getur í reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, svo sem nánari skilgreiningu á því hvaða skilyrði vél bifreiðar og búnaður að öðru leyti þarf að uppfylla til þess að bifreið teljist nýta metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skv. 1. mgr., um gögn sem leggja þarf fram með umsókn um undanþágu á grundvelli þess ákvæðis og um eftirlitið.
Þingskjal 1410, 133. löggjafarþing 686. mál: vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (metangasbifreiðar).
Lög nr. 77 30. mars 2007.
Lög um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.
1. gr.
Orðin „metangas eða“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VII í lögunum falla brott.2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Bifreiðar sem gjaldskyldar eru skv. 3. gr. laganna og búnar eru vélum og öðrum búnaði sem miðast við að bifreið nýti metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skulu vera undanþegnar vörugjaldi samkvæmt lögum þessum til 31. desember 2008.
Tilgreina skal í ökutækjaskrá ef vörugjald hefur verið fellt niður skv. 1. mgr. svo og stærð eldsneytisgeyma.
Óheimilt er að breyta bifreiðum skv. 1. mgr. með brottnámi metangasbúnaðar eða með breytingum á eldsneytisgeymum.
Ef brotið er gegn 3. mgr. skal skráður eigandi bifreiðar, sem notið hefur niðurfellingar vörugjalds skv. 1. mgr., greiða til tollstjóra fullt vörugjald skv. 3. gr. ásamt 50% álagi.
Tollstjórar hafa eftirlit með framkvæmd þessa ákvæðis og geta gert þær athuganir sem taldar eru nauðsynlegar til að kanna hvort gerðar hafi verið breytingar á bifreið andstætt 3. mgr., þar á meðal að skoða eldsneytisgeyma og vél ökutækis.
Fjármálaráðherra getur í reglugerð sett nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, svo sem nánari skilgreiningu á því hvaða skilyrði vél bifreiðar og búnaður að öðru leyti þarf að uppfylla til þess að bifreið teljist nýta metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu skv. 1. mgr., um gögn sem leggja þarf fram með umsókn um undanþágu á grundvelli þess ákvæðis og um eftirlitið.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. mars 2007.