Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 881, 135. löggjafarþing 353. mál: geislavarnir (einfaldara eftirlit o.fl.).
Lög nr. 28 11. apríl 2008.
Þingskjal 881, 135. löggjafarþing 353. mál: geislavarnir (einfaldara eftirlit o.fl.).
Lög nr. 28 11. apríl 2008.
Lög um breytingu á lögum nr. 44/2002, um geislavarnir.
1. gr.
5. tölul. 2. gr. laganna orðast svo: Geislunarlegan þátt viðbúnaðar við hvers kyns geislavá.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Við bætist nýr töluliður, 8. tölul., svohljóðandi: Leyfishafi: Aðili sem hefur fengið leyfi Geislavarna ríkisins til notkunar geislavirkra efna eða geislatækja sem gefa frá sér jónandi geislun.
- Í stað orðsins „eiganda“ í 8. tölul., sem verður 9. tölul., kemur: leyfishafa.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- 9. tölul. 1. mgr. orðast svo: Geislunarlegan þátt viðbúnaðar við hvers kyns geislavá, m.a. greiningu á ógn af hennar völdum, samhæfingu viðbúnaðar við alþjóðleg viðmið, rekstur viðbúnaðar- og geislamælikerfa og annað því tengt.
- Á eftir 9. tölul. 1. mgr. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Nauðsynlega mælifræði og varðveislu landsmæligrunna vegna notkunar jónandi geislunar á Íslandi.
- Í stað orðanna „láta stofnuninni í té nauðsynlegar upplýsingar“ í 5. mgr. kemur: veita stofnuninni aðstoð við öflun nauðsynlegra upplýsinga.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Á eftir orðinu „innflutningur“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: útflutningur.
- 2. og 3. málsl. 3. mgr. orðast svo: Innflytjendur skulu senda Geislavörnum ríkisins tilkynningu eigi síðar en 1. febrúar ár hvert um innflutning og kaupendur tilkynningarskyldra tækja á liðnu ári. Innlendir framleiðendur skulu með sama hætti senda slíka tilkynningu um innlenda kaupendur tilkynningarskyldra tækja.
5. gr.
Fyrirsögn III. kafla laganna verður: Leyfisveitingar og tilkynningar um innflutning o.fl.6. gr.
2. málsl. 1. mgr. 9. gr. laganna orðast svo: Notkun geislavirkra efna sem ekki falla undir 2. mgr. 7. gr. og geislatækja sem gefa frá sér jónandi geislun er háð leyfi Geislavarna ríkisins.7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Í stað orðsins „eigandi“ í 1. mgr. og 1. málsl. 2. mgr. og „eiganda“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur í viðeigandi beygingarfalli: leyfishafi.
- Í stað orðanna „innra eftirliti“ í 3. mgr. og „innra eftirlits“ í 4. mgr. kemur í viðeigandi beygingarfalli: gæðaeftirlit.
8. gr.
Í stað orðsins „eiganda“ í lokamálslið 2. mgr. 12. gr. laganna kemur: leyfishafa.9. gr.
Í stað orðsins „Eigendur“ í 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: Leyfishafar.10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:- Í stað orðsins „eigandi“ í 1. málsl. kemur: leyfishafi.
- Í stað orðanna „sbr. 7., 9. og 20. gr.“ í 1. málsl. kemur: sbr. 7. og 9. gr.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:- 1. mgr. fellur brott.
- 2. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
12. gr.
Fyrirsögn IX. kafla laganna verður: Uppsetning og viðgerðir á geislatækjum.13. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009.Samþykkt á Alþingi 7. apríl 2008.