Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 96. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 98  —  96. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um skipun nefndar um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



    Hvað líður skipun nefndar sem fjalla á um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins, sbr. ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 58/2008, en samkvæmt ákvæðinu átti nefndin að skila tillögum sínum fyrir 1. júní 2009?