140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 600 — 318. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 42/1983, um Landsvirkjun, lögum nr. 139/2001,
um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, raforkulögum,
nr. 65/2003, og lögum nr. 19/2011, um breytingu á raforkulögum,
nr. 65/2003, með síðari breytingum (eigendaábyrgðir, eignarhald
flutningsfyrirtækisins og frestun fyrirtækjaaðskilnaðar).
(Eftir 2. umræðu, 17. desember.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 42/1983, um Landsvirkjun, með síðari breytingum.
1. gr.
Landsvirkjun er heimilt að stofna til fjárhagslegra skuldbindinga til þarfa fyrirtækisins og gangast í ábyrgð fyrir greiðslum í sama skyni. Nýjar fjárhagslegar skuldbindingar, sem njóta skulu ábyrgðar eigenda skv. 2. mgr. 1. gr., eru háðar samþykki ráðherra.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 139/2001, um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, með síðari breytingum.
3. gr.
a. Í stað orðsins „lánaskuldbindingum“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: fjárhagslegum skuldbindingum .
b. Í stað orðsins „lánsfjárþörf“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: fjárþörf.
c. Lokamálsliður 2. mgr. orðast svo: Aðrar nýjar fjárhagslegar skuldbindingar, sem njóta skulu ábyrgðar eigenda, eru háðar samþykki þeirra.
d. Í stað orðsins „lánaskuldbindingum“ í 3. mgr. kemur: fjárhagslegu skuldbindingum .
4. gr.
III. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum.
5. gr.
6. gr.
Ákvæði 2.–4. málsl. 1. mgr. 14. gr. koma til framkvæmda 1. janúar 2014.
IV. KAFLI
Breyting á lögum nr. 19/2011, um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum.
7. gr.
8. gr.
Við gildistöku laga þessara skal ráðherra orkumála skipa nefnd þar sem eiga sæti fulltrúar ráðuneytis orkumála, ráðuneytis fjármála, sveitarfélaga, Landsnets, Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur, RARIK ohf. og Orkubús Vestfjarða. Hlutverk nefndarinnar er að kanna möguleika á breyttu eignarhaldi á flutningsfyrirtækinu, í gegnum beint eignarhald ríkis og/eða sveitarfélaga, og gera tillögu um kaup ríkis og/eða sveitarfélaga á hlut orkufyrirtækja í flutningsfyrirtækinu.
Nefndin skal skila tillögum eigi síðar en 31. desember 2012.
9. gr.