Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 48. máls.
142. löggjafarþing 2013.
Þingskjal 125  —  48. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum (innri endurskoðun,
meðferð framlags til starfsendurhæfingar, form og efni fjárfestingarstefnu,
leyfilegur munur á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga o.fl.).

(Eftir 2. umræðu, 17. september.)


1. gr.


    Við 10. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er ráðherra heimilt að kveða í reglugerð nánar á um þau atriði sem eiga samkvæmt lögum þessum að koma fram í reglum um viðbótartryggingavernd og séreignarsparnað.

2. gr.

    Í stað dagsetningarinnar „1. júlí“ í 3. mgr. 24. gr. laganna kemur: 15. maí.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr. laganna:
     a.      2. málsl. fellur brott.
     b.      Á eftir orðinu „endurskoðanda“ í 3. málsl. kemur: aðila sem annast innri endurskoðun.

4. gr.

    2. tölul. 3. mgr. 29. gr. laganna orðast svo: að ákveða hvernig innri endurskoðun skuli háttað, annaðhvort með því að ráða forstöðumann endurskoðunardeildar eða semja við sjálfstætt starfandi eftirlitsaðila.

5. gr.

    Í stað orðanna „innra eftirlit“ í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 34. gr. laganna kemur: innri endurskoðun.

6. gr.

    Fyrirsögn VI. kafla laganna verður: Rekstur, innra eftirlit og innri endurskoðun.

7. gr.

    2. mgr. 37. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra setur reglugerð um form og efni fjárfestingarstefnu skv. 36. gr. og 36. gr. a og úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar.

8. gr.

    3. málsl. 6. mgr. 40. gr. laganna fellur brott.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:
     a.      Orðin „og innra eftirliti, sbr. 35. gr.“ í 2. mgr. falla brott.
     b.      Í stað orðanna „VII. kafla laga um ársreikninga“ í 3. mgr. kemur: IX. kafla laga um ársreikninga.

10. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða VI í lögunum:
     a.      Á undan ártalinu „2011“ í 2. mgr. koma ártölin: 2008, 2009, 2010.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 2. mgr. 39. gr. og með vísan til 2. mgr. þessa ákvæðis er lífeyrissjóði heimilt að hafa meira en 10% mun á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga samfellt í allt að sex ár frá og með árinu 2008.

11. gr.

    Í stað orðanna „og 2015“ í ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum kemur: 2015, 2016 og 2017.

12. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.