Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1029 — 76. mál.
Nr. 21/145.
Þingsályktun
um greiningu á möguleikum þess að móta sameiginlega langtímastefnu fyrir samgöngur og innviði á Vestur-Norðurlöndum.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að vinna ásamt landsstjórnum Færeyja og Grænlands greiningu með það að markmiði að kanna möguleika þess að móta sameiginlega langtímastefnu á sviði samgangna og innviða á Vestur-Norðurlöndum til að svæðið sem heild standi betur að vígi í vaxandi alþjóðlegri samkeppni á norðurslóðum.
Samþykkt á Alþingi 16. mars 2016.