Ferill 739. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1339 — 739. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um póstþjónustu, nr. 19/2002, með síðari breytingum (erlendar póstsendingar og rafrænar sendingar).
(Eftir 2. umræðu, 10. apríl.)
1. gr.
Erlend póstsending: Póstsending til landsins, innan alþjónustu.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
a. Á eftir orðunum „Gjaldskrár fyrir alþjónustu“ í 4. mgr. kemur: þar á meðal gjaldskrár vegna erlendra póstsendinga.
b. Á eftir 3. málsl. 4. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Rekstrarleyfishafar skulu að því er varðar gjaldskrár vegna erlendra póstsendinga gera Póst- og fjarskiptastofnun grein fyrir kostnaðargrundvelli gjaldskrár eigi síðar en fimm virkum dögum áður en hún tekur gildi.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Gjald sem rekstrarleyfishafa er heimilt að leggja á erlendar póstsendingar skv. 4. mgr. skal greitt af viðtakanda sendingar.
5. gr.
Þrátt fyrir 1. mgr. getur rekstrarleyfishafi ekki farið þess á leit að honum verði með fjárframlögum tryggt endurgjald fyrir þjónustu vegna erlendra póstsendinga, sbr. 4. og 8. mgr. 16. gr.
6. gr.
Rekstrarleyfishafa er heimilt að senda hérlendum og erlendum tollyfirvöldum, flutningsaðila eða póstrekanda erlendis upplýsingar sem getið er í a–e-lið til að flýta fyrir tollafgreiðslu sendinga og tryggja öryggi póstflutninga á sjó, landi og í lofti eða með vísan til allsherjarreglu:
a. tengiupplýsingar um sendanda,
b. tengiupplýsingar um viðtakanda,
c. upplýsingar um innihald,
d. upplýsingar um verðmæti,
e. upplýsingar um auðkenni póstsendingar.
Rekstrarleyfishafa er heimilt að taka við upplýsingum sem getið er í 3. mgr. frá sömu aðilum og þar er getið.
Ráðherra getur með reglugerð ákveðið, að höfðu samráði við Persónuvernd, að heimila sendingu og viðtöku á öðrum upplýsingum en getið er í a–e-lið 3. mgr. og ákveða í hvaða tilgangi heimilt er að senda upplýsingar skv. 3. mgr.
Vinnsla persónuupplýsinga samkvæmt lögum þessum skal uppfylla kröfur laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
7. gr.
8. gr.
Ákvæði 4. og 5. gr. laga þessara gilda um erlendar póstsendingar sem stimplaðar eru með dagstimpli erlendis eftir miðnætti að íslenskum tíma þann dag er lögin taka gildi.