Ferill 776. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1654 — 776. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, með síðari breytingum (stjórn veiða á makríl).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar (LRM, ÁsF, HSK, JÞÞ, KÓP, NTF, ÓÍ).
1. Við 1. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Aflahlutdeild í makríl skiptist í tvo flokka, A- og B-flokk. Aflahlutdeild í A-flokki skal úthluta á skip sem stunduðu makrílveiðar á viðmiðunartímabilinu með öðrum veiðarfærum en línu og handfærum. Aflahlutdeild í B-flokki skal úthluta á skip sem stunduðu makrílveiðar á viðmiðunartímabilinu með línu og handfærum.
2. Við bætist nýr kafli, II. kafli, Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, með síðari breytingum, með fjórum nýjum greinum, svohljóðandi:
a. (2. gr.)
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
a. Við 2. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Aflahlutdeild í makríl skiptist í tvo flokka, A- og B-flokk. Í A-flokki er hlutdeild úthlutað á grundvelli veiðireynslu með öðrum veiðarfærum en línu og handfærum. Í B-flokki er hlutdeild úthlutað á grundvelli veiðireynslu með línu og handfærum.
b. Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: og aflamagni skv. 10. gr. b.
b. (3. gr.)
Á eftir 10. gr. a laganna kemur ný grein, 10. gr. b, svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að ráðstafa allt að 4.000 lestum af makríl til skipa í B-flokki. Hvert skip á kost á að fá úthlutað allt að 35 lestum af makríl í senn gegn gjaldi sem á hverjum tíma skal nema sömu fjárhæð og veiðigjald fyrir makríl. Eftir 15. september ár hvert er ráðherra heimilt að ráðstafa því sem eftir er til fiskiskipa í A-flokki gegn sama gjaldi. Ráðherra skal setja nánari reglur um framkvæmd úthlutunar samkvæmt þessari grein.
c. (4. gr.)
Á eftir 1. málsl. 6. mgr. 12. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að framselja aflahlutdeild skips í makríl úr B-flokki.
d. (5. gr.)
Á eftir 3. mgr. 15. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Óheimilt er að flytja aflamark skips í makríl úr B-flokki, nema í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu, ufsa og steinbít. Ráðherra er heimilt að flytja ónýtt aflamark í makríl úr B-flokki yfir í A-flokk eftir 15. september ár hvert, að teknu tilliti til tegundartilfærslna og flutningsréttar milli veiðitímabila, sem ráðstafað skal jafnt á skip með aflamark í A-flokki.
3. Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (stjórn veiða á makríl).