Ferill 797. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1752  —  797. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (flytjanleiki efnisveituþjónustu).

(Eftir 2. umræðu, 7. júní.)


1. gr.

    53. gr. a laganna orðast svo:
    Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1128 frá 14. júní 2017 um flytjanleika efnisveituþjónustu á Netinu yfir landamæri á innri markaðnum, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 26. júlí 2018, bls. 383–393, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2018 frá 6. júlí 2018, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2019.