Ferill 792. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2068  —  792. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum (flutningskerfi raforku).

(Eftir 2. umræðu, 2. september.)


1. gr.

    Á eftir 5. mgr. 9. gr. a laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Um tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands um sæstreng fer samkvæmt stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.