Ferill 1011. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2082  —  1011. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um verktakakostnað lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.


     1.      Hver hefur kostnaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verið vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2017?
    Kostnaður embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2017 var 631.671.787 kr. og er skipting milli ára eftirfarandi:

2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
59.042.011 58.511.632 62.294.788 75.782.906 81.491.246 77.010.468 102.940.971 114.597.765

     2.      Fyrir hvaða verkefni var þjónustan keypt, af hverjum og hve háar voru greiðslur til hvers og eins?
    Sjá fylgiskjal.

     3.      Hverjir voru skráðir stjórnarmenn lögaðila sem þjónustan var keypt af á hverjum tíma?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.

    Veigamikla úttekt þyrfti að gera til þess að veita upplýsingar um skráða stjórnarmenn lögaðila á hverjum tíma. Slík úttekt yrði það umfangsmikil að ekki er hægt að svara þeim hluta fyrirspurnarinnar í stuttu máli, sbr. 1. mgr. 57. gr. þingskapalaga.


Fylgiskjal.


Yfirlit, sbr. 2. tölul. fyrirspurnarinnar.

www.althingi.is/altext/pdf/149/fylgiskjol/s2082-f_I.pdf