Ferill 760. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1851  —  760. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni yfirskattanefndar.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir yfirskattanefnd?
    Yfirskattanefnd starfar samkvæmt lögum nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, með síðari breytingum, þar sem kveðið er á um hlutverk og verkefni nefndarinnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna yfirskattanefndar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi yfirskattanefndar fellur undir málaflokk 5.1 Skattar og innheimta og samkvæmt fylgiriti með fjárlögum fyrir árið 2020 er fjárveiting til nefndarinnar 169,6 millj. kr.