Ferill 826. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2021  —  826. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um ræstingarþjónustu.


     1.      Hvernig er ræstingu sinnt hjá ráðuneytinu og stofnunum þess? Óskað er sundurliðunar eftir stofnunum og að fram komi kostnaður árið 2019 þar sem þjónustan var aðkeypt og meðalfjöldi stöðugilda árið 2019 þar sem ræstingu er sinnt af starfsfólki á launaskrá.
    Dómsmálaráðuneytið hefur gert þjónustusamning við Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins. Samkvæmt þeim samningi sinnir Umbra ýmsum rekstrarþáttum fyrir ráðuneytið, þar á meðal ræstingu. Ræstingin er unnin samkvæmt samningi við verktaka eftir útboð Ríkiskaupa. Við vinnslu svarsins var óskað eftir upplýsingum frá stofnunum ráðuneytisins og byggjast svör hvað stofnanir ráðuneytisins varðar á þeim upplýsingum sem sendar voru til ráðuneytisins. Eftirfarandi tafla sýnir kostnað dómsmálaráðuneytisins og undirstofnana þess vegna aðkeyptrar ræstingarþjónustu:

Kostnaður árið 2019 Fjöldi stöðugilda
Dómsmálaráðuneytið 5,2 m.kr.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 7,5 m.kr.
Sýslumaðurinn á Austurlandi 0,4 m.kr. 0,71
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 3,4 m.kr. 2
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 1 m.kr. 2
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu 25,7 m.kr.
Lögreglustjórinn á Austurlandi 1,9 m.kr. 0,75
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra 4,9 m.kr. 0,78
Lögreglustjórinn á Vesturlandi 4
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum 0,3 m.kr. 0,5
Dómstólasýslan 0,6 m.kr.
Héraðsdómur Reykjavíkur 4,9 m.kr.
Héraðsdómur Norðurlands eystra 1,9 m.kr.
Landsréttur 6,4 m.kr.
Héraðssaksóknari 3,1 m.kr.
Ríkissaksóknari 2,4 m.kr.
Útlendingastofnun 19,6 m.kr. 1
Landhelgisgæslan 29 m.kr.
Persónuvernd 1,1 m.kr.
Kærunefnd útlendingamála 1,3 m.kr.
Fangelsismálastofnun 12,3 m.kr.

    Héraðsdómur Norðurlands vestra greiðir fyrir þrif en þau falla inn í leigu á húsnæði. Ekki er sérstök sundurliðun á kostnaði við þrif. Þá er Héraðsdómur Suðurlands með starfsmann sem fær greitt samkvæmt uppmælingu.
    Hjá Fangelsismálastofnun og fangelsum í landinu eru þrifin framkvæmd á þrjá mismunandi vegu. Í fyrsta lagi fá fangar greidda þóknun fyrir hvern unninn tíma í þrifum á sameiginlegu fangarými, í öðru lagi þá eru starfsmenn í einu fangelsi hjá stofnuninni að sinna þrifum á varðstofu og starfsmannaaðstöðu og í þriðja lagi eru þrif útvistuð, þ.e. á skrifstofum stofnunarinnar og á starfsmannaaðstöðu fangelsa. Ekki eru skilgreind stöðugildi eða ársverk í þrifum þar sem um tímavinnu fanga og starfsmanna er að ræða.

     2.      Á hvaða hátt tryggir verkkaupi að ekki sé um félagsleg undirboð að ræða í þeim tilvikum þegar ræstingu er útvistað?
    Í útboðsskilmálum Ríkiskaupa um ræstingarþjónustu fyrir ráðuneytið er gerð krafa um að verktaki tryggi að allir starfsmenn hans fái laun og starfskjör í samræmi við gildandi kjarasamninga hverju sinni og að aðstæður þeirra séu í samræmi við löggjöf á sviði vinnuverndar. Þá er áskilið að verktaki leggi fram gögn því til staðfestingar sé þess óskað.
    Þær stofnanir sem hafa nýtt sér útboð í gegnum Ríkiskaup leggja allar áherslur á að sambærileg krafa sé gerð í þeirra útboðsskilmálum. Aðrar stofnanir hafa að öðru leyti regluleg og góð samskipti við þjónustuaðila sína og er gengið út frá því við gerð samninga að viðkomandi fyrirtæki virði íslensk lög og kjarasamninga um réttindi starfsfólks.