Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
2. uppprentun.
Þingskjal 1172 — 399. mál.
Leiðréttur texti.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (hvatar til fjárfestinga).
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Við 1. gr.
a. Í stað orðanna „árinu 2021“ í 1. mgr. komi: árunum 2021 og 2022.
b. Í stað 2. mgr. komi tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Að auki er heimilt að reikna sérstakt fyrningarálag á stofnverð eigna sem aflað er á árunum 2021–2025 og teljast umhverfisvænar, stuðla að sjálfbærri þróun, uppfylla áskilin skilyrði og falla undir einn af eftirfarandi flokkum:
1. Vistvænar samgöngur.
2. Endurnýjanleg orka.
3. Hreinsun fráveituvatns og endurnýting úrgangs.
4. Sjálfbær og umhverfisvæn stýring á náttúruauðlindum og landnotkun.
Fyrningarálag skv. 2. mgr. skal vera eftirfarandi:
1. 25% vegna lögaðila skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 2. gr.
2. 13,3% vegna lögaðila skv. 3., 4. og 5. tölul. 1. mgr. 2. gr.
3. 13,18% vegna einstaklinga í atvinnurekstri.
c. Í stað tilvísunarinnar „2. mgr.“ í inngangsmálslið 3. mgr. komi: skv. 2. og 3. mgr.
d. Í stað orðanna „sem er tileinkuð“ í 2. tölul. 3. mgr. komi: sem felst í.
e. 3. tölul. 3. mgr. orðist svo: Eru tilgreindar í viðeigandi BAT-niðurstöðum Evrópusambandsins og uppfylla losunarviðmið í viðeigandi BAT-niðurstöðum Evrópusambandsins.
f. Í stað hlutfallstölunnar „100%“ í 4. tölul. 3. mgr. komi: a.m.k. 85%.
g. Orðið „hlutfallslega“ í 5. tölul. 3. mgr. falli brott.
h. Lokamálsliður 5. mgr. falli brott.
i. 6. mgr. falli brott.
j. 1. málsl. 7. mgr. falli brott.
k. Í stað orðanna „Þá er ekki heimilt“ í 2. málsl. 7. mgr. komi: Óheimilt er.
l. Í stað tilvísunarinnar „3. mgr.“ í lokamálslið 7. mgr. og í 8. mgr. komi: 4. mgr.