Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Nr. 33/151.
Þingskjal 1825 — 81. mál.
Þingsályktun
um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.
Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélögin. Stefnan verði tímasett samhliða því að tryggður verði fjárhagslegur stuðningur við afreksfólk.
Ráðherra leggi fram á Alþingi tímasetta stefnu um afreksfólk í íþróttum fyrir 1. júní 2022.
Samþykkt á Alþingi 13. júní 2021.