Ferill 349. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1225  —  349. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja).

(Eftir 2. umræðu, 13. júní.)


1. gr.

    Á eftir 1. mgr. 9. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ráðherra er heimilt að úthluta aflahlutdeild til veiða á staðbundnum nytjastofnum hryggleysingja þannig að sérstök aflahlutdeild komi fyrir hvert veiðisvæði.

2. gr.

    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    a. (XXII.)
                 Endurreikna skal aflahlutdeild í sandkola við upphaf fiskveiðiársins 2022/2023 með þeim hætti sem hér segir:
                  a.      Að 85/100 hlutum samkvæmt skráðum aflahlutdeildum hvers fiskiskips í sandkola við upphaf fiskveiðiársins 2022/2023.
                  b.      Að 15/100 hlutum samkvæmt veiðireynslu hvers fiskiskips í sandkola á fiskveiðiárunum 2017/2018, 2018/2019 og 2019/2020 á svæðinu norðan skilgreinds aflamarkssvæðis fyrir sandkola sem afmarkast af Snæfellsnesi suður um að Stokksnesi.

    b. (XXIII.)
                 Við upphaf fiskveiðiársins 2022/2023 skal setja skipum sjálfstæða aflahlutdeild skv. 2. mgr. 9. gr. í sæbjúgum á hverju veiðisvæði samkvæmt reglugerð nr. 741/2019 um veiðar á sæbjúgum á eftirfarandi hátt:
                  a.      Svæði A–E: Samkvæmt aflareynslu skips á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021 vestan 20°V.
                  b.      Svæði F–H: Samkvæmt aflareynslu skips á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021 austan 20°V.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.