Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1406  —  496. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um dómsmál íslenska ríkisins á hendur umsækjanda um stöðu ráðuneytisstjóra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver var heildarkostnaður ríkissjóðs vegna dómsmáls íslenska ríkisins á hendur umsækjanda um stöðu ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti sem auglýst var til umsóknar 8. júní 2019? Óskað er eftir upplýsingum um kostnað íslenska ríkisins vegna meðferðar málsins hjá kærunefnd jafnréttismála, kostnað við rekstur málsins fyrir héraðsdómi, þar á meðal laun setts ríkislögmanns og málsvarnarlaun verjanda stefndu, og kostnað vegna áfrýjunar og meðferðar málsins í Landsrétti, þar á meðal laun setts ríkislögmanns og málsvarnarlaun verjanda stefndu. Þá er óskað eftir upplýsingum um kostnað íslenska ríkisins vegna samkomulags sem gert var við stefndu í aðdraganda þess að fallið var frá málinu nokkrum dögum áður en til málflutnings kom.

    Eins og kemur fram í svari þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur (þskj. 1568, 600. mál á 151. löggjafarþingi) nam kostnaður vegna umrædds dómsmáls 8.732.190 kr. Við það bættust 5.565.810 kr. vegna frekari meðferðar málsins og áfrýjunar til Landsréttar. Útlagður kostnaður vegna meðferðar málsins hjá kærunefnd jafnréttismála var enginn.